Fugla BINGO

Sumar-Fugla-Bingó!

Ég er búin að setja saman fugla-bingó, ath ekki allir fuglar Íslands innifaldir (vonandi fyrirgefið þið mér það). En þetta gæti verið skemmtileg aðferð til að kenna krökkunum á íslensku fuglanna eða bara fyrir ykkur sjálf ef þið viljið læra þá betur. Gott væri auðvitað að hafa alltaf með sér fuglavísi/fuglabók í bílnum á ferðalögum sínum í sumar!

ATH það eru til 12 spjöld (númer 9 ætti að vera auðvelt) Hverja mynd þarf að velja og afrita (copy) yfir í eitthvað forrit sem hentar ykkur til að prenta, t.d. er hægt að afrita spjald í word og svo skella í prent.

Njótið og endilega deilið, ég setti þetta saman til fræðslu og skemmtunar.

OG sorrý mér finnst ógeðslega leiðinlegt að teikna fætur svo sumir fuglar eru kannski skrítnir og sumir eru kannski krassaðir upp í flýti. En þar sem ég vildi ekki taka myndir af netinu og vera ásökuð um netstuldur, teiknaði ég þetta snögglega upp.

Með von um skemmtilegt fugla sumar!

Kv. Ellen Magnúsdóttir